inicio Setja sig i;ó samband sindicaci;ón

Rigning

Það er búið að rigna núna í held ég viku og finnst mér það alltaf jafn yndislegt (Ég hlakka samt alveg til í næstu viku að fá sól og 20 stiga hita og ég elska ekki að vera alltaf blaut í fæturnar, minnið mig á að kaupa mér gúmmítúttur þegar ég verð á fróninu næst) eeen allavegana venjulegt að frétta ég að læra alla daga Fannar vinna og mútzíkast og tvisvar í viku förum við saman í  katalónsku og fáum okkur síðan te eftir tíma að læra heima.

Það er komin dagsettning á plötuna, 12.maí verður hinn stórmerkilegi dagur! öllum boðið í partý!

Ekki fleira að sinni læt fylgja mynd með sem ég tók á leiðinni af markaðnum.

img_7092.jpg

póstur

Þetta blogg fer nú bráðum að líða undir lok.. en ég ætla að gamni mínu að koma með smá fréttir, ef það er einhver að lesa þetta…

En þetta ár er búið að vera alveg fínasta fínnt og margt um að vera, ætla að gera bara punta yfir það sem er helst í fréttum… klassíst…

Sigrún vinkona, Björn Ingi, Árni Magnús sonur þeirra og Anna Margrét systir Björns Inga eru flutt hingað í næstu götu. Þau ætla að vera fram á sumar, það er ótrúlega gaman að hafa þau og erum við búin að gera ýmislegt skemmtilegt  saman eins og að elda mat saman :)

Ég átti afmæli um daginn og var það voða fínnt, fékk voða fínar gjafir og hitti yndislega vini mína á bar um kvöldið ofsalega skemmtilegt!

Valý var hérna í síðustu viku og var hér í viku og það var svo yndislega skemmtilegt hjá okkur og mér finnst svo leiðinlegt að hún sé farin!!! En við munum eiða mööörgum stundum saman von bráðar…

Fannar er núna í töluðum orðum að klára diskinn, þeir eru að fara að senda hann í masteringu á morgun!! já allt að gerast og er alveg endalaust af skemmtilegum hlutum að gerast í kringum þá það er svo gaman að fylgjast með hvað þetta gengur vel! Þeir verða með sitt fyrsta dj-sett á föstudaginn rosa partý, rosa stuð!!

Eftir tvær vikur erum við að fara til Koben og ég verð þar í viku og Fannar 5 daga. Bryndís er að fara að flytja og ætlum við að veita henni smá hljálparhönd auk þess að leika við börnin hennar, þau og allt það góða fólk sem býr í Koben!!!! Ég ætla líka að vinna við verkefnið mitt góða og taka nokkur viðtöl á meðan ég verð þar.

Annars gengur bara vel í skólanum held ég.. er smá eftir á en ekkert til að hafa áhyggjur af, fer bara á fullt núna að reyna að ljúka sem mestu af áður en ég fer til Koben.

Vona að lífið sé ljúft hjá ykkur öllum!

kossar og faðmlög úr yndislega vorinu í Barcelona!!

smá myndir með…

Sigrún og Árni Magnús

img_1525.jpg

Ég og Valý á leið á vit ævintýra næturinnar!

img_1583.jpg

Út um stofugluggann okkar að morgni, og húsið sem er í miðjunni er húsið sem við áttum heima í fyrst þegar við fluttum hingað.

img_6549.jpg

Fannar að ræða heimsmálin áðan yfir kaffibolla

img_6771.jpg

Alde leidís ar tjékking át mæ sjúgar lumps

Jólafrí

Ég veit að ég er búinn að vera lélegur að blogga, og ég er viss um að Katrín fái áfall þegar hún sér að ég er búinn að skrifa. Ég er búinn að vera á fullu í vinnunni og þegar ég er ekki í vinnunni er ég að búa til mútzík, þannig að ég er ekki búinn að vera að sinna síðunni mikið. Ég vil samt þakka öllum sem nenna að kommenta því það er alltaf gaman að sjá að einhver sé að lesa þetta !

Nú styttist í jólafríið, verður síðasti vinnudagurinn minn 19 desember og verð ég í fríi til 7. janúar. Katrín er nú þegar byrjuð í fríi þannig að þetta verður voða ljúft. Við ætlum að fara á morgun og kaupa í jólakrans því við erum svoldið sein í því þetta árið enda 3. í aðventu núna á sunnudaginn, en við ætlum að hella okkur í jólaundirbúninginn til að undirbúa þessi þriðju jól sem við erum hér í Barcelona. Katrín er líka að “fá lánað” af netinu pakka með öllum frægustu jólabíómyndunum og teiknimyndunum, þetta típíska sjónvarpsefni sem er alltaf á ríkissjónvarpinu um jólin.

Jæja ég er víst í vinnunni og þarf að halda áfram, en ég vona að allir hafi það sem best.

Vel tengdur gæji

Eins og flestir vita þá er Fannar frekar fyndinn og skemmtilegur og sendi hann mér þetta flippaða video af flippuðum gæja… mig langar ekki að prufa þetta..

Banki í eigu ríkisvaldsins, Landsbankinn virtist hafa átt frumkvæði í málinu (mbl)

Hvað er að gerast!!! Nú finnst mér bara verið að gera grín að okkur þjóðinni beint fyrir framan nefið á okkur!!! Hvernig geta svona viðskipti hjá Jón Ásgeir átt sér stað?!?!?!?!?!?!?!?!?!??!?!?!??!?!?!? Þjóðin á að fá það á borðið hvernig þetta fór fram!!!!! Mér finnst svo óþæginlegt að vera hérna úti! Hinn almenni Íslendingur á ekki að láta bjóða sér þetta og láta í sér heyra þangað til það verður hlustað!!! Mér finnst að það eigi að fá sérfræðinga á þessu sviði að utan!!!! Einhverja sem eru fyrir utan þetta fáum vel valda frá norðurlöndunum og fleiri stöðum og látum þá rannsaka þetta mál og koma öllu upp á yfirborðið!!!

Það eru að eiga sér stað hryðjuverk á mjög alvarlegu stigi á Íslandi því JÚ við höfum að mínu mati marga hryðjuverkamenn og hafa þessir menn óþæginlega mikið vald!!! Ég veit að þetta er að gerast út um allan heim en ég trúi því alls ekki að það sé verið að gera allt til að gera skaðann minni fyrir þjóðina!!!

Mér finnst alveg hrikalega sorgleg tilhugsunin að ég vilji kanski ekki koma heim með börnin mín í framtíðinni til að vera því bara með því að fæðast eru komnar ef ég skil rétt 20 milljónir á barnið (og á eftir að hækka)  Ísland yndislega landið mitt! ég veit að ég er í drama kasti… en mun ég þurfa að fara til annars lands ef ég vil að barnið mitt fái það besta….???

Svo eru engar fréttir maður veit ekki neitt. Er ekki ástæða fyrir því að það vilja fáir hjálpa okkur, vitum við allt? ég held það ekki ég held að við vitum afskaplega lítið… og hvað eru þeir að gera við þessa peninga sem þeir eru búnir að fá??? KANSKI KAUPA FJÖLMIÐLA!!! var það Landsbankinn sem lánaði þessa peninga og ef svo er þá hvað í ansk…. er í gangi!!!

Varð bara að skrifa hérna smá niður maður verður svo máttvana af reiði!!!! Hvernig eigum við að láta í okkur heyra? Hvar getum VIÐ farið og náð í upplýsingar um hvernig málunum er háttað ekki bara bíða þangað til það kemur á mbl. og ef það kemur á mbl þá er það farið af forsíðunni eftir 20 mínutur því þeir eru fljótir að bæta fréttum inn til að þær fréttir hverfi!!!! UFF!!!

Ég veit ekkert hvort að það sé allt rétt sem maður heyrir og eru mikið af ýkjusögum á sveimi eins og það að Finnar segja í gríni að það eigi að Skjóta Íslendinga… (meining á málshætti sem þeir hentu fram)…

Þetta er komið gott og það dugar ekki bara að segja að þetta “reddist” bara! það þarf að gera eitthvað!

Fullt af ást og kossum!

Haust

Nú er komið haust! Það er búið að rigna í allan dag og orðið smá kalt. Ég er búin að labba á milli staða í fallegu regnkápunni minni með regnhlíf og hlusta á ljúfa tóna í mp3 spilaranum mínum… jú mér finnst haustið án efa skemmtilegasti tíminn í Barcelona (og yfir höfuð held ég) borgin verður bara svo ótrúlega sjarmerandi! Ég var að koma heim núna eftir nokkra tíma á kaffihúsi með Kim og er að bíða núna eftir að Fannar komi heim til að fá okkur salat saman og ef til vill að horfa á 1 þáttinn í annari seríu í Dexter undir sæng… og hlusta á rigninguna…

Takk fyrir að commenta hérna! Mér þykir svo óendanlega vænt um ykkur öll!!!

Nei nei nei nei…

Ég og Fannar vorum að horfa á þetta… ég trúi því ekki að hún sé þarna og fólk sé í alvöru að fagna henni þarna bakvið!!!!!

Íslenskt já takk!!

Þá er ég komin heim á calle Cardóna! Það er voðalega gott að vera komin aftur í íbúðina og finns mér að núna er ég fyrst að fara að koma okkur fyrir hérna. En ég er líka með smá hnút í maganum að vera farin frá öllum á Íslandi! Það er svo gott að vera í kringum ykkur öll þið eruð svo ólýsanlega skemmtileg, fyndin, góð, umhyggjusöm og ég veit ekki hvað og hvað!! En það sem gerir þennan hnút í maganum aðeins lausari er skype!! jú ég get meirinsegja SÉÐ og spjallað við mörg ykkar!! SS takk takk takk takk takk takk takk fyrir ótrúlega góðar stundir og íslenskt já takk!!!

Í nótt svaf ég í tæpa 14 tíma já ég var svoldið þreytt eftir svefnlitla vikur og fór út og tók út 60 evrur, ss það tókst en það er ekki komið á heimabankann og veit ekki hvað ég borgaði mikið fyrir þessar 60 evrur. Í dag ætla ég að búa til skipulag fyrir vikuna og ætla ekki að læra í dag!! Ætla að leifa mér að anda smá áður en ég fer aftur á fullt og svo er ég að fara í spænskutíma á eftir frekar skondið en ég held að það verði bara stuð ég og Kim erum saman á einhverju ókeypis námskeiði út veturinn förum 2 í viku til júní á næsta ári.

Ég ætla ef til vill að byrja að skrifa meira hérna inn ef ég fæ góðar undirtektir.

isl.jpg

Við erum lifandi

smá listi:

  • Vorum að flytja erum komin í Raval aftur ss hverfið sem við byrjuðum í og erum við mjög ánægð með það vorum komin með nóg af allskonar veseni í hinni íbúðinni.
  • Ég var í Koben að hitta allt þetta yndislega fólk sem er þar og er eiginlega svoldið blúsuð yfir þessu öllu saman að búa ekki í sama landi og þetta yndislega fólk…
  • Erla er búin að eignast litla prinsessu, Til hamingju Erla og Freyr!!!!!
  • Mér gengur vel í náminu er ánægð með að hafa farið í þetta.
  • Fannari gengur eins og í sögu allt að gerast skal ég segja ykkur.
  • Enda á því að tilkynna það (fyrir þá fáu sem vita ekki) að þá er ég að koma núna á föstudaginn og verð til 19.okt! Þetta er ss allt komið á hreinnt og er ég að koma út af skólanum en auðvitað líka til að hitta mann og annann. Ég verð bara með gamla símann minn (694 5795)
Next entries »